Við bara stóðumst ekki mátið. Það er nefninlega ekki oft sem jólagjafirnar kosta „aðeins“ 88.500 krónur gott fólk 🙂

„Vissirðu að jólagjafirnar hér í Dublin kosta aðeins tæpar 90 þúsund krónur, Alfreð?“

„Vissirðu að jólagjafirnar hér í Dublin kosta aðeins tæpar 90 þúsund krónur, Alfreð?“

Myndin af fésbókarvef ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar, Úrval Útsýn, þar sem verið að koma á framfæri sérferð ferðaskrifstofunnar til hinnar írsku Dublin í nóvember.

Tilgreint verð á þó væntanlega við um ferðina sjálfa en ekki jólagjafirnar eins og álykta má í fyrstu atrennu. Ekki slæmt verð og Dublin er æði ljúf heimsóknar og heimamenn opna gjarnan arma sína fyrir Íslendingum.

Þó kannski óþarfi að birta þessa mynd af fallegu og hressu fólki að njóta lífsins fáklædd. Það er nefninlega ekkert svona veður í Dublin í nóvember. Fyrir utan þá staðreynd að myndin er alls ekki tekin í Dublin.