Okkur hefur orðið tíðrætt að undanförnu um afar dýran skottúr Vita ferð til Kúbu næsta vetur en við erum ekki betur að okkur en svo að fleiri aðilar eru að bjóða Kúbuferðir um svipað leyti. Þar er um að ræða mun lengri ferð en ekki í beinu flugi og ásett verð í dýrari kantinum.

Ólíklegasta fólk hefur getað hreyft sig lítið eitt á dansgólfinu eftir stund með innfæddum á Kúbu. Mynd Jennie Rainsford
Hér er um að ræða ferð á vegum ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar, FGJ, sem oft var kenndur við rútubílaútgerð hér á árum áður.
Ekki nóg með að Guðmundur sé að bjóða ferð heldur er leiðsögumaður enginn annar en danskennarinn gamalkunni Heiðar Ástvaldsson sem kenndi líklegast 90 prósent þjóðarinnar spor og annað hér fyrr á tíð um svipað leyti og Abba vann Eurovision keppnina. Engum á að koma á óvart að skrokkurinn verður aðeins hristur á útvöldum salsa-stöðum í ferðinni og enginn staður í heimi er betri til þess arna.
Kúbuferð FGJ er tólf nátta ferð en þó aðeins dvalið á Kúbu í ellefu daga og ein nótt í París á útleið. Sex daga dvöl er í Havana með morgunverði og fjórir dagar til á ströndinni í Varadero með öllu inniföldu.
So far so good!
Slæmu tíðindin þau að verðmiðinn á Kúbupakka þeirra Guðmundar og Heiðars er 391 þúsund krónur á mann. Hjón eða par þarf að leggja út 782 þúsund krónur. Hver einasti dagur í ferðinni kostar parið rúmlega 65 þúsund krónur. Það er 18 þúsund krónum lægra verð per dag en sama par þarf að greiða fyrir Kúbuferð Vita en engu að síður ekki mjög merkilegur pakki. Jafnvel þó Heiðar dansi eins og engill og þekki krók og kima í Havana er þetta fráleitt verð.
Vissulega er fyrirtak að hafa íslenskan leiðsögumann til að fræða á göngutúrum um Havana en það er líka hægt að fá fyrsta flokks leiðsögumann á næsta götuhorni í borginni fyrir nokkra dollara. Salsabari er víða að finna og ekki þarf nema spyrja heimamenn sem eru venjulega allir af vilja gerðir að hjálpa fyrir lítið eða ekkert. Þess utan er frábært að villast í Havana og ávísun á skemmtileg ævintýri oft á tíðum.
Fararheill leitaði að gamni að smekklegri Kúbuferð á sama tímabili og FGJ býður sína ferð í október. Komi fólk sér til London á sæmilegu verði og heim aftur að ferð lokinni er Virgin Holidays að bjóða fjórtán nátta allt-innifalið pakka á fínu hóteli á Varadero um miðjan mánuðinn fyrir 418 þúsund krónur á par. Já, þú last það rétt. Svipað verð á parið og einstaklingurinn greiðir með Heiðari og Guðmundi og ferðin lengri í þokkabót.
Nú kann einhver að spyrja hvernig njóta eigi Havana þegar dvalið er 14 nætur á Varadero. Til þess eru ýmsar leiðir en sökum þess hve hagkvæmt verð er á ferð Virgin fer fólk væntanlega ekki yfir um þó það blási 50 þúsund krónum í viðbót. Fólk einfaldlega lætur skutla sér til Havana, hótelskutlur flestra hótela á Varadero bjóða slíka þjónustu, bókar hótel í tvær, þrjár eða fimm nætur eftir hentugleika og kemur sér fyrir. Notar dagana til að skoða í þaula áður en haldið er aftur til Varadero. Ágæt hótel í Havana fást í október allt niður í sjö til tíu þúsund krónur per nótt með morgunverði.
Einnig er hægt að fara daglega til Havana frá Varadero og eyða degi eða dögum en þar sem túrinn er þrír tímar fram og aftur er ívið gáfulegra að leigja herbergi í Havana og láta fara vel um sig.







