Ritstjórn Fararheill hefur síðustu misserin fengið heilan helling af beiðnum um aðstoð varðandi að skipuleggja ferðir á eigin spýtur og gera það á sem ódýrastan máta.
Af þeim fjölda hafa stöku fyrirspurnir varðað ódýra gistingu í Alicante og nánar tiltekið í eða við Torrevieja.
Það vita þeir sem áhuga hafa að leigja þar alvöru villu að slíkt fæst vart undir 50 þúsund krónum á viku og mun dýrar en það á háannatímum í júní, júlí og ágúst. Þaðan af síður eru hótel góður kostur á annatímum þó vissulega megi inn á milli finna ágæt tilboð.
Hvað gera bændur þá?
Ein hugmyndin er að prófa sig áfram á leigumiðlunarvefnum Airbnb. Sá er nokkuð traustur og öryggis bæði leigusala og leigjenda nokkuð vel gætt. Þar gefst kostur á að leigja hefðbundar íbúðir í öllum stærðum yfir ákveðinn tíma.
Við leituðum að íbúðum miðsvæðis í Torrevieja, Cabo Roig og Orihuela í júlímánuði og þrengdum svo leitina við þær allra ódýrustu sem lausar voru þegar þetta er skrifað. Allnokkrar billegar íbúðir eru í boði og þótt sumar þeirra séu vel undir því að teljast merkilegar fundum við fjórar sem fá engin verðlaun en duga til og gott betur ef fólk er aðeins að hugsa um einfalt þak yfir haus. Sem er eðlileg hugsun því hver hangir innivið á heitasta mánuði ársins við sólarströndu.
Íbúðirnar eru:
- Þessi íbúð fyrir fjóra kostar aðeins 105 þúsund krónur fyrir heilan mánuð og er laus
- Þessi hér á miðbæjarsvæðinu í Torrevieja og einnig fyrir fjóra fæst allan júlímánuð fyrir 128 þúsund krónur
- Lítil en smekkleg þakíbúð á ágætum stað í Orihuela kostar allan júlí aðeins 124 þúsund
- Önnur lítil en með yndislegum svölum og ágætu útsýni heilan júlímánuð fyrir 170 þúsund
Hafa skal í huga að ofangreind verð miðast við allan júlímánuð og lækka því hlutfallslega því skemur sem dvalist er. Ófeimin að leita og skoða sjálf en hægt er að þrengja leit og víkka eftir öllum kúnstarinnar reglum. Ófeimin líka að hafa samband fararheill@fararheill.is ef við getum eitthvað aðstoðað meira.








