Wow Air auglýsir grimmt sértilboð til London og kostar samkvæmt auglýsingum 12.990 krónur aðra leiðina. Tvennt er við þetta að athuga. Annars vegar að auglýst verð er ekki það verð sem þú þarft að greiða og í annan stað er easyJet að bjóða nokkuð betur aðra leiðina til höfuðborgar Bretlands.
Raunverð á 12.990 króna tilboði Wow Air er 13.895 krónur með bókunargjaldi sem aldrei er talið með. Um er að ræða eina dagsetningu þann 11.maí næstkomandi og eins og alltaf án farangurs.
Sekúndulöng leit á flugi með easyJet til Luton í maí leiðir í ljós að þar má finna, þegar þetta er skrifað, flug allt niður í 9.800 krónur aðra leiðina með öllum sköttum og gjöldum en ekki farangri.
Sparnaðurinn þarna dugar ekki til að setjast áhyggjulaus í helgan stein en gefur þó vísbendingar um hversu mikið hærri lægstu tilboð Wow Air geta verið umfram easyJet. Fimm þúsund króna munur aðra leiðina þýðir að líkindum tíu þúsund króna mun báðar leiðir og hvern munar ekki um tíkallinn á þessum síðustu og verstu?









