Dagar víns og rósa eru komnir aftur og það í boði norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian. Í það minnsta fyrir þá sem langar að skreppa til Oslóar.

Oft hefur Norwegian boðið vel en sjaldan svona

Oft hefur Norwegian boðið vel en sjaldan svona

Nú eru í gangi sérstakir tilboðsdagar hjá norska flugfélaginu, svokallaður superpris, en þá lækkar flugfélagið verð á tilteknum fjölda ferða sinna enn frekar en venjulega. Og þar sem hefðbundið verð Norwegian er alla jafna mjög lágt segir sig sjálft að superpris fargjöldin eru okkur mjög að skapi.

Fararheill hvetur fólk til að skoða ferðir félagsins gaumgæfilega því frá Osló og reyndar Bergen líka er flogið víða og trixið því að komast ódýrt til Osló til að geta nýtt sér þau fínu tilboð áfram á sólríkari og ódýrari áfangastaði en Noregur sjálfur er.

Við höfum ekki mörg orð um tilboð Norwegian en látum nægja að segja að við hjá Fararheill höfum ekki séð svona verð á ferð um langa hríð. Hægt er að fljúga til Oslóar og heim aftur í maí og júní þegar þetta er skrifað allt niður í 12.570 krónur samtals. Báðar leiðir. Það þýðir að hvor leið kostar manninn 6.285 krónur miðað við miðgengi dagsins. Það er ekkert minna en frábært en hér skal þó hafa í huga að ekki er farangur innifalinn.

Vefur Norwegian hér.

Eitt af þeim tilboðum sem finnast á vef Norwegian nú. Osló og heim aftur undir þrettán þúsund krónum.

Eitt af þeim tilboðum sem finnast á vef Norwegian nú. Osló og heim aftur undir þrettán þúsund krónum.