Það er gömul saga og ný að forstjórar og yfirmenn sem lengi hanga á roðinu missa með tíð og tíma öll tengsl við viðskiptavini sína. Það er yfirleitt þannig sem fyrirtæki hefja brottför sína úr þessum heimi þó banalegan geti reyndar tekið langan tíma.

Strönd Varadero á Kúbu heillar marga og eðlilega en varla á þeim prís sem Vita heimtar. Mynd Bruno

Strönd Varadero á Kúbu heillar marga og eðlilega en varla á þeim prís sem Vita heimtar. Mynd Bruno

Okkur varð hugsað til þessa eftir að hafa rekið augun í ummæli hugsanlegra viðskiptavina við auglýsingum ferðaskrifstofunnar Vita um Kúbuferð sem í boði er í nóvember. Almennt á að gleðjast þegar innlendir aðilar bjóða aðrar ferðir en venja er og Kúba á stað í hjarta margra Íslendinga.

En eins og sjá má hér er aldeilis fráleitt að heimta hálfa milljón króna fyrir sjö daga ferð til Kúbu en þar af hefur fólk í raun aðeins sex daga til dundurs því flugtíminn er litlir 20 tímar að lágmarki. Fyrir par sem bókar þessa ferð kostar hver einasti dagur þannig rúmar 83 þúsund krónur!!! Fyrir utan aðra vankanta á ferð Vita.

Ekki það að við efuðumst einhvern tímann en miðað við ummæli á fésbókarvef Vita eru fleiri en færri á nákvæmlega sömu skoðun og ritstjórn Fararheill. Fín ferð en fáránlega dýr og frámunalega stutt. Það segir sig algjörlega sjálft. Svo virðist reyndar sem yfirstjórn Vita sé kunnugt um að þetta sé nú ekki auðseljanleg ferð. Í öllu falli er undarlegt að auglýsa aftur og aftur ferð sem enn eru sjö mánuðir í.

kubb4