Flugfélagið Wow Air auglýsir nú sértilboð á flugi til Barcelona í júlímánuði og býður flug aðra leið frá Íslandi allt niður í 21.895 krónur. Það er allt að 200 prósent lægra verð en Icelandair er að bjóða í sama mánuði.

Engin spurning að Wow Air er að bjóða æði vel þessa stundina til Barcelona í júlí

Engin spurning að Wow Air er að bjóða æði vel þessa stundina til Barcelona í júlí

Alls óhætt að grípa þessa gæs Wow Air en úttekt Fararheill leiðir í ljós að lægsta verð, 20,990 krónur, fæst á velflestum dagsetningum júlímánuð þegar þetta er skrifað. Hafa skal reyndar í huga að auglýst verð er lægra en það sem þú þarft að greiða því bókunargjald er ekki innifalið í verðinu. Sömuleiðis er enginn farangur með í för.

Það breytir ekki því að önnur leiðin til Barcelona í júlí er allt að 40 þúsund krónum ódýrari núna hjá Wow Air en Icelandair sé miðað við aðra leið út. Dýrast er að fljúga út með Icelandair þann 28. júlí þegar fargjald aðra leið kostar manninn 65.230 krónur en sem fyrr er 20 kílóa taska með í för hér.

Reyndar skal og hafa í huga að þurfi fólk að komast til baka frá Barcelona til Keflavíkur í júlí hækkar verðlag töluvert hjá Wow Air. Á þremur dagsetningum er hægt að finna flug heim niður í 23 þúsund krónur eða svo en heilt yfir má gera ráð fyrir að heimflugið kosti ekki undir 30 þúsund krónum.

Eitthvað sem þig vantar að vita um Barcelona? Söfn, djamm, afþreying, verslun, matur og allt annað hér.