Nú þegar peningar eru af skornari skammti hjá mörgum getur skipt sköpum að velja ekki aðeins ódýr ferðalög heldur er einnig mikilvægt að verðlag á áfangastaðnum sé bærilegt eða betra. Skipti slíkt þig máli standa tveir staðir upp úr þetta árið: Algarve í Portúgal og Balí í Indónesíu.

Fiskimenn á Algarve selja gjarnan veiði dagsins á ströndinni sem hjálpar þeim sem vilja lifa ódýrt erlendis. Mynd Chris Zielecki

Fiskimenn á Algarve selja gjarnan veiði dagsins á ströndinni sem hjálpar þeim sem vilja lifa ódýrt erlendis. Mynd Chris Zielecki

Það eru niðurstöður könnunar bresku póstþjónustunnar sem árlega birtir ítarlegan lista yfir hvar hægt er að kaupa ákveðnar nauðsynjavörur á hvað lægstu verði.

Það kann að vera undarlegt að póstyfirvöld skuli taka að sér kannanir á kostnaði á áfangastöðum hér og þar í veröldinni en svona er það og hefur verið um rúmlega 30 ára skeið. Könnunin er mjög ítarleg og þykir vel mark á takandi.

Og sennilega ætti engum að koma á óvart að Algarve skuli mælast ódýrasti áfangastaðurinn en almennt er 2014 gott ferðaár því könnunin sýnir að verðlag á nauðsynjum hefur lækkað á 44 vinsælum áfangastöðum og um allt að 30 prósent milli ára. Nánast eina undantekningin reyndist vera Costa del Sol á Spáni en verðlag þar á vörukörfu hækkaði milli ára og gefur til kynna að gúrkutíð í ferðaþjónustu þar sé yfirstaðin.

Aðeins merkilegra er að á Balí er hægt að kaupa nauðsynjar eins og brauð, kaffi, kjöt og fisk auk bjóra eða víns á bar eða veitingastað á lægra verði en annars staðar. Hefur Balí ekki áður komið svo vel út úr könnuninni.

Heilt yfir er Ítalía dýrasta Evrópulandið miðað við umrædda vörukörfu og verð þar um það bil helmingi hærra en í Portúgal. Verð hefur engu að síður lækkað á Ítalíu og sömu sögu er að segja af Grikklandi og Tyrklandi.

Vinsæl vörukarfa reyndist á allra lægsta verði í þessum löndum.

Vinsæl vörukarfa reyndist á allra lægsta verði í þessum löndum.