Við sögðum ykkur um daginn frá afsláttartilboði norsku ferðaskrifstofunnar Apollo sem bauð tilteknar sumarferðir á helmings afslætti. Sú er þó fjarri því sú eina sem slíkt býður og nú hefur fólk rúma viku til að skoða og bóka „allt innifalið“ ferðir á allt að 50 prósenta afslætti hjá breska ferðamiðlinum Travel Republic.
Þar er margt ljúfra ferða þetta sumarið í boði og verð ætti ekki að vefjast fyrir neinum sem á annað borð hyggur á sumarleyfi erlendis. Meðal afsláttur er um 30 prósent af verði sem er almennt lágt fyrir svo um töluverðan sparnað getur verið að ræða en auðvitað verður ferð að hefjast í Bretlandi og kosta verður för þangað og heim aftur í þokkabót. Engu að síður þess virði að skoða. Kannski poppar upp draumaferðin og það kannski á verði sem kemur á óvart.
Hafa skal í huga að Travel Republic er ekki ferðaskrifstofa í eiginlegu tilliti heldur umboðsaðili sem tekur saman flug, gistingu og annað, blandar saman og seldur á sem hagstæðastan máta. Oft er um að ræða flug með lággjaldaflugfélögum og oftast nær þarf að greiða aukalega í þeim tilfellum fyrir allan farangur. Eins og alltaf er ráð að lesa smáa letrið áður en fólk bókar.








