H mmm! Eitt stykki bréf í hinu hálf-ríkisrekna Icelandair fæst þennan daginn á eina krónu og 63 aura…

Gengi hlutabréfa Icelandair síðustu árin. Skjáskot

Burtséð frá öllu öðru er strax merkilegt að bréf í félagi á íslenskum hlutabréfamarkaði í lok árs 2021 kosti krónur og AURA með tilliti til þessa hér frá árinu 2004:

Forsætisráðherra hefur að tillögu Seðlabanka Íslands undirritað tvær reglugerðir sem varða greiðslumiðlun og gjaldmiðil Íslands. Annars vegar er um að ræða reglugerð um að heildarfjárhæð sérhverrar kröfu eða reiknings skuli greind og greidd með heilli krónu og hins vegar reglugerð um innköllun þriggja myntstærða (aura). Samkvæmt fyrri reglugerðinni verður engum skylt að inna af hendi greiðslu í aurum frá og með 1. október 2003. Eftir sem áður verður heimilt að nota brot úr krónu í útreikningi verðs, en lægri fjárhæð en 0,5 krónur skal þá sleppt og 0,5 krónur eða hærri fjárhæð hækkuð í eina krónu. Samkvæmt síðari reglugerðinni skal fimm, tíu og fimmtíu aura mynt innkölluð. Bankar og sparisjóðir verða skyldugir til að taka við aurum og láta í staðinn krónur fram til 1. október 2003. Til þess tíma verða aurar áfram lögmætur gjaldmiðill, en ekki lengur. Seðlabanki Íslands mun þó innleysa aura til 1. október 2004.

Aurar hafa ekki verið lögmætur gjaldmiðill á Íslandi í sautján ár. Hvers vegna eru hlutabréf ennþá keypt og seld í aurum?

En ók, við missum okkur stundum hér 🙂

Nokkur atriði:

A) Icelandair hefur um tæplega þriggja ára skeið, nokkuð áður en Kófið fór að gera usla, skorið niður, lækkað laun, breytt og bætt, selt tugi eigna og notið þess að eldsneytisverð var nánast allt síðasta ár í sæmilega sögulegu lágmarki.

B) Icelandair hefur frá Kófsbyrjun notið milljarða styrkja frá skattborgurum landsins án þess að lækka almenn fargjöld um einn aur.

C) Icelandair hefur svo lengi sem elstu menn muna ráðið til sín allra fremsta viðskiptafólk landsins og þess utan stundum líka. Stundum líka sakbitna svindlara.

D) Icelandair hefur brúkað skattaskjól og fifferí gegnum tíðina til að þurfa nú alls ekki að greiða neitt til samfélagsins.

E) Rellur Icelandair voru flestar framleiddar þegar T-Rex var að bögga Darwin. Þær menga næstum fjórðungi meira en nútímarellur. Þú flýgur aðeins með þeim ef þú elskar mengun og vibba.

F) Forráðamenn Icelandair hafa skyggnigáfu dauðans. Margir útvaldir áfangastaðir reynst ein stór eiturpilla.

Ókídókí!

Okkur er spurn, enn og aftur, ef stjórn og stjórnendur Icelandair eru svona mega merkilegir og snillar í bransanum hvers vegna bréf í fyrirtækinu fást enn þann dag í dag eina krónu og 63 aura? Verðið hefur tæknilega séð ekkert hækkað frá byrjun Kófsins og lækkað um tæplega hundrað prósent frá efstu stöðu vorið 2016 (þegar, nota bene, núverandi forstjóri var bæði fjármálastjórinn og hægri hönd þáverandi forstjóra.)

Jú, víst tekur hlutabréfaverðið mið af aðstæðum á heimsvísu og þær ekkert frábærar þessa stundina. Snarbreyttar aðstæður samt engin ný breyta undir sólinni og sérstaklega ekki í flugrekstri. Svartir svanir og allt það.

Forráðamenn hefðu getað búið sig undir slíkt með því að leggja seðla undir koddann í stað þess að eyða milljörðum í að endurkaup á bréfum sínum og heimta svo ríkisaðstoð á fimm mínútna fresti.

En sú staðreynd að bréf í Icelandair í dag fæst á 12% lægra verði en lægsta gengi náði þegar Hrunið gekk yfir landið og heiminn 2008-2009 segir allt sem segja þarf.

Hættum að kaupa af þessu fyrirtæki sem fyrst.

Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉