
Heimtufrekja forstjóra Icelandair er með ólíkindum. Skjáskot
Að svona delar skuli vera forstjórar flaggflugfélags Íslands er hneisa, hneisa og hneisa og það í þessari röð. Stjórinn er fúll á móti og segir, í samtali við Morgunblaðið í vikunni, flugfélagið ekki hafa notið sams konar styrkja og helstu samkeppnisaðilar. „Blaðamaður” Morgunblaðsins gerir enga tilraun til að fá á hreint hvað vellauðugur forstjórinn meinar með þessum orðum og við því nauðbeygð til að draga okkar eigin ályktanir.
Nokkur atriði svona fyrir þau ykkar sem eru að heimsækja Fararheill fyrsta sinni:
A) Einkafyrirtækið Icelandair hefur síðustu mánuðina fengið og notað fimm milljarða króna af almenningsfé til að koma sér hjá gjaldþroti. Gjaldþroti sem lá fyrir þegar Covid hóf innreið sína sökum hörmulegs reksturs flugfélagsins mörg ár þar áður. Hörmulegs reksturs meðan forstjórinn sjálfur var einn lykilmanna.
B) Frá síðustu aldamótum hefur Icelandair aukinheldur fengið milljarða í viðbót af almannafé og ekki síst í Hruninu 2008 þegar allt fór í frost á fimm mínútum. Flugfélagið hefur ennfremur aftur og aftur fengið aðstoð ríkisins þegar starfsmenn hafa farið í verkfall vegna bágra kjara. Lög hafa gjarnan verið sett til að koma í veg fyrir að Icelandair greiði laun sem starfsfólkið telur réttmæt. Að síðustu hafa íslensk stjórnvöld eytt hundruð milljóna króna til að kynna landið sem ferðamannastað og þá ekki síst á helstu áfangastöðum Icelandair.
C) Icelandair hefur varla sýnt eina krónu í hagnað um 14 ára skeið. Flugfélagið svo illa rekið að meira að segja á gullaldartímabili íslenskrar ferðaþjónustu 2013-2019 þegar ferðamenn flykktustu hingað í öflugri mæli en vatn fer niður Dettifoss, gat Icelandair aðeins sýnt fram á stóran mínus í kokkabókum sínum. Bogi Nils einn aðalstjórnandi allan þann tíma.
D) Þrátt fyrir Enron-rekstur árum saman vantaði ekkert á að hlutafjáreigendur fengju sitt. Icelandair eyddi rúmum tveimur milljörðum króna í kaup á eigin bréfum um tíma til þess eins að auka virði bréfanna. Fyrir vikið þurfti enn stærri lán fyrir nýjum rellum í eldgamlan flugflotann.
E) Icelandair átti og rak lengi vel mörg helstu og bestu hótel landsins vítt um landið með ágætum hagnaði þó það færi fyrir lítið í stóru hagnaðarmyndinni. En fyrirtækið varð að selja allt klabbið á brunaútsölu FYRIR COVID sökum bágrar fjárhagsstöðu. Nú eru hótelin öll í eigu asísks viðskiptajöfurs og allur hagnaður hverfur úr landi hraðar en Júlíus Vífill Ingvarsson kom arfi sínum í skjól frá bræðrum og systrum og íslenskum skattayfirvöldum.
F) Icelandair hefur séð að mestu um allt innanlandsflug um margra ára skeið. Með þeim afleiðingum að flugferðum innanlands FÆKKAÐI um helming frá því sem best var. Þar líka Icelandair notið ríkisaðstoðar í formi fjármuna almennings og ekki síður rándýrra ríkisúttekta sérfræðinga til að varpa ljósi á málið. Það súperkjánalegt því ástæðan einfaldlega sú að Icelandair vildi græða innanlands líka og því hækkuðu fargjöld jafnt og þétt burtséð frá eldsneytis- og áhafnarkostnaði og eða tekjum landsmanna.
G) Þrátt fyrir taprekstur á taprekstur ofan sá Icelandair gríðarleg tækifæri í flugrekstri erlendis. Bæði á Asóreyjum og ekki síður Grænhöfðaeyjum. Úr varð að fyrirtækið keypti stóran hlut í ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja. Milljarðar króna í súginn þar fyrir skemmstu þegar þarlent ríki rifti samningum við Icelandair.
H) Óljóst er nákvæmlega hvað forstjórinn meinar með súrheitum sínum gagnvart ríkinu. Er hann að miða við British Airways? SAS? Delta? Lufthansa? Eða kannski Flugfélag Vatíkansins? Það eru engin flugfélög sem fljúga reglulega til og frá jafn fámennu landi og Icelandair. Nema kannski hið færeyska Atlantic Airways. Þeir fengu svo mikið sem 280 milljónir króna í hjálp frá þeim yfirvöldum í vetur sem leið. Töluvert lægri upphæð en Icelandair fékk hérlendis.
Við gætum haldið áfram í marga daga en látum staðar numið enda Versló og allir að fá sér og njóta. Njótið vel 😉







