Y firvöld í Þýskalandi hafa hert til muna eftirlit á landamærum sínum gagnvart ferðafólki í kjölfar breytinga yfirvalda. Nú dúllast enginn inn í landið án þess að vera fullbólusettur og/eða sýnir fram á neikvætt Covid-próf.

Stórhertar reglur fyrir aðkomufólk til Þýskalands þennan daginn. Mynd Newspaper.org

Tilfellum hefur vissulega fjölgað í landinu síðustu sólarhringa en er fjarri því jafn slæmt og aukning tilfella í helstu nágrannalöndum. En með landamæri að níu öðrum löndum þarf ekki mikið til að allt fari í bál og Russell Brand og það vilja súrkálselskendurnir forðast í lengstu lög.

Eins og víða annars staðar í veröldinni eru fjölmargir heimamenn mótfallnir bólusetningu og því hafa mótmæli átt sér stað í helstu borgum landsins. Sem aftur getur sett strik í reikning þeirra sem vilja dúllast um í landinu.

Betra að geyma það…