Þ riðju helgina í röð fór fram kröftug mótmælaganga í miðborg Parísar og fjölda annarra borga Frakklands til að mótmæla þeim reglum stjórnvalda að enginn óbólusettur einstaklingur fái leyfi til að njóta almenningsgarða, veitingastaða, listasafna né nokkurs annars staðar þar sem fjöldi fólks kemur saman.

Sitt sýnist hverjum um Frakka en það mega þeir eiga að ef almenningi mislíkar eitthvað alvarlega eru sirka fimm mínútur í fjöldamótmæli á torgum borga og bæja. Og það yfirleitt ekki tíminn til að vera mikið á vappinu sem ótýndur ferðamaður. Vesen að komast á milli, samgöngur lamast að mestu og lögregla í engu stuði til að aðstoða einn né neinn.

Frönsk stjórnvöld eru tæknilega að leika rétta leikinn að okkar mati; takmarka duglega rétt óbólusettra til að fara ferða sinna eins og þeim sýnist.

Víst er slíkt brútalt í öllu tilliti en yfirvöldum í öllum löndum ber skylda til að vernda þegna sína og af því leiðir að takmörk á ferðum þeirra sem kjósa að vera óbólusettir liggur í augum uppi. Ekki síst þegar um er að ræða veiru sem dregur fjölda fólks til dauða.

Í öllu falli, ekki heppilegur tími til að skottast í helgarferð til Frans alveg á næstunni…