Margir Íslendingar virðast trúa því að allra ódýrasta flug í boði á erlendar grundir sé vafalaust með Wow Air. Þar kann að hafa áhrif stífar auglýsingar þess efnis. Raunin er samt önnur og nú birtir Fararheill þriðju verðkönnun sína í röð á skömmum tíma þar sem Wow Air er aftarlega á meri.

Það er ekki nóg að segjast bjóða best....

Það er ekki nóg að segjast bjóða best….

Um er að ræða flug til Berlínar næsta sumar en ritstjórn leitaði að lægsta fargjaldi Wow Air annars vegar og AirBerlin hins vegar sem eru þau tvö flugfélög sem bjóða reglulega ferðir til Berlínar frá Keflavík. Sams konar könnun gerðum við líka fyrir skömmu varðandi flug til og frá Alicante og Barcelóna næsta sumar.

Sem fyrr leituðum við að lægsta fargjaldi aðra leiðina fyrir einn fullorðinn í júní, júlí og ágúst hjá báðum flugfélögum. AirBerlin býður farþegum sínum að taka 20 kílóa tösku með og því bættum við einni slíkri við fargjald Wow Air auk þess sem sérstakt bókunargjald upp á 995 krónur er líka innifalið. Munurinn á fargjöldum þessara flugfélaga er það mikill að jafnvel þó taska, 3495 krónur, sé tekin úr jöfnunni hjá Wow Air er það flugfélag samt sem áður dýrast.

* Könnun gerð kl 07 þann 19. janúar 2014 á báðum bókunarvélum samtímis og tiltekið heildarverð. Evrum hjá AirBerlin breytt í íslenskar krónur miðað við miðgengi á föstudaginn 17. janúar. Hafa skal í huga að lægsta fargjald var aðeins til á örfáum dagsetningum hjá báðum og verð breytast hratt.