Lággjaldaflugfélagið Norwegian opnaði nýlega fyrir sölu til sinna nýjustu áfangastaða og þar ber ágætlega í veiði. Íslendingar komast nú til Prag í Tékklandi gegnum Bergen með flugfélaginu norska alveg niður í fjórtán þúsund krónur aðra leið.
Þar er miðað við allra lægstu fargjöld félagsins annars vegar frá Keflavík til Bergen og hins vegar frá Bergen til Prag. Svo er þjóðráð að heilsa upp á frændur og frænkur í Bergen í leiðinni.
Aðrir nýir staðir sem Norwegian er að bjóða núna eru til dæmis New York, Los Angeles, San Francisco og Orlando frá Osló en nett skoðun leiðir í ljós að samanlagður kostnaður til Osló og þaðan áfram er oftast nær hærri en að greiða fyrir beint flug frá Íslandi.
Svo má ekki gleyma að Wow Air mun fljótlega kynna sína áfangastaði í Bandaríkjunum en þar hafa bæði Boston og New York verið nefndir. Ritstjórn verður hlessa ef þar leynast ekki lægri fargjöld en Norwegian er að bjóða frá Noregi.








