Wow Air blæs í tilboðslúðra þennan daginn og auglýsir tilboðsverð til bæði Parísar og Berlínar. Þúsund sæti sögð í boði til þessara tveggja skemmtilegu borga og verð aðra leið 13.895 krónur.

Berlín og París á tilboði hjá Wow Air

Berlín og París á tilboði hjá Wow Air

Þó þarna sé enginn farangur innifalinn og fljúga verði eigi síðar en 15. apríl þá er bragð að þessu. Sérstaklega á það við um París þangað sem öllu algengara verð aðra leiðina er kringum 30 þúsund krónur.

Þess má geta í þessu sambandi að vetrarútsölurnar eru í fullum gangi í frönsku höfuðborginni og verða áfram í helstu verslunum fram í byrjun febrúar. Í Berlín er líka nokkuð um útsölur en þar er verðlag líka almennt alltaf gott.