Miðað við miðgengi breska pundsins gagnvart krónunni íslensku eru 35 pund nú alls 6.732 krónur. EasyJet auglýsir nú 220 þúsund flugmiða sem á lægra verði en það.
Breska lággjaldaflugfélagið er grimmt að bjóða ýmis tilboð og nú hefur fyrirtækið sett í sölu þennan fjölda flugmiða frá öllum sínum áfangastöðum og þar á meðal til og frá Íslandi. Þó er sá hængur á að aðeins er hægt að finna þetta lágt verð á umræddum flugsætum ef tveir ferðast saman.
Áhugasamir þurfa því bæði að hafa fljótar hendur því 200 þúsund sæti eru fljót að fara og leita á bókunarvél easyJet miðað við tvo en ekki færri eða fleiri. Hver veit nema þá sé hægt að njóta lífsins erlendis á ódýran hátt fram að sumri en flugmiðar á þessu verði duga til ferða frá byrjun febrúar og allt fram til 9. júlí. Hafa skal í huga að farangur kostar aukalega og lítið aukagjald er gjarnan tekið þegar greitt er með kreditkortum. Engu að síður fyrirtaks tilboð.








