Hvort sem það er vegna gamalla véla, sífellt daprari þjónustu eða annars þá gengur Icelandair illa að reka af sér slyðruorð.

Stærsta og öflugasta flugfélag Íslands á að gera betur en hanga um miðja deild.

Stærsta og öflugasta flugfélag Íslands á að gera betur en hanga um miðja deild.

Samkvæmt nýjasta flugvefnum sem gefur fólki tækifæri til að tjá sig um þjónustu flugfélaga er Icelandair hrein meðalmennska. Þar er um að ræða hinn skemmtilega vef Routehappy sem er flugleit sem tekur alla þjónustu með í reikninginn. Sætisbil, vöruúrval, mat, net, afþreyingu og svo framvegis til að farþegi sem fer frá A til B og hefur um tvo kosti eða fleiri að velja geti séð á augnabliki með hvaða flugfélagi sé „skemmtilegast“ að fljúga.

Einhverra hluta vegna hefur Wow Air ekki komist á blað enn hjá Routehappy sem þó er aðeins tæplega ársgamall vefur og hefur náð verulegum vinsældum. Meiri athygli vekur þó meðalmennska Icelandair.

Fararheill greindi frá því á síðasta ári að einkunnir Icelandair hjá öðrum þekktari og eldri einkunnavef, Skytrax, hefði fallið og heldur áfram að falla. Þegar Fararheill tók til starfa 2010 var meðaleinkunn Icelandair hjá Skytrax 7.2 af tíu mögulegum eða barasta hreint ágæt. Í fyrra féll flugfélagið niður í 6.2 og er núna þegar þetta er skrifað í 5. Þar líka er Icelandair í meðalmennskunni og það bókstaflega. Þriðja dæmið þessu til sönnunar eru umsagnir á hinum breska ReviewCentre. Af fimm mögulegum er Icelandair metið á 2,8. Líka miðlungs.

Kannski hefur dæmi eins og þetta töluvert meiri áhrif en menn halda en Fararheill rakst á eftirfarandi á fésbókarvef Icelandair. Þar skrifar viðskiptavinur þann 14. janúar að taska hans sem flugfélagið flaug með hafi ekki skilað sér í ELLEFU daga. Sem er út af fyrir sig alveg hörmuleg þjónusta. En flugfélagið bítur höfuðið af skömminni með því að svara manninum ekki fyrr en 60 klukkustundum síðar og þá er honum bara bent á að hafa samband við töskudeild!!!

Enginn vafi leikur á að þjónustustig í sumum deildum flugfélagsins er fyrir neðan allar hellur BM Vallá.

rtyuu

Annað sem er vert að nefna í þessu sambandi er að forráðamenn flugfélagsins eru líklega mjög meðvitaðir um slælegar einkunnir. Allavega var flugfélagið fljótt að henda út heimilisfangi sínu á fésbókinni strax og ljóst varð fyrir skömmu að notendur Facebook gætu gefið öllum fyrirtækjum með skráð heimilisfang einkunnir. Bæði íslensku flugfélögin fjarlægðu strax heimilisfang og því ekki hægt að gefa þeim opinbera einkunn.

Þó verður vitiborið fólk að taka öllum einkunnavefmiðlum með salti því eins og raunin er með Tripadvisor og aðra stóra slíka vefi er misnotkun auðveld. Sé einhver brjálaður út í hótel eða flugfélag er einfaldasta mál í heimi að kvarta og kveina um það hótel eða fyrirtæki á slíkum miðlum. Tímafrekt kannski en vel hægt. Og það hefur sannarlega áhrif.

Í öllu falli verður einhver aðili í þjónustudeild Icelandair að fara að girða sig í brók og hætta dagdrykkjunni því félagið er ekki að koma vel út á samfélagsmiðlum. Þeir miðlar munu hafa mikið meira vægi á komandi árum og með vaxandi vinsældum Íslands sem ferðamannastaðar og hratt vaxandi ferðamannafjölda í heiminum samkvæmt Alþjóða ferðamannaráðinu, UNWTO, munu fleiri flugfélög sýna því áhuga að fljúga farþegum til og frá Íslandi. Þá er gott að vera vel girtur.