Auglýsingaherferðir Icelandair óma og hljóma nú í nánast öllum miðlum landsins. Fólk þar hvatt til ferðalaga sem er hið besta mál en Fararheill setur örlítinn fyrirvara við að bæta smá Glasgow í líf þitt. Allavega seinnipart júlí.
Ástæðan ekki sú að Glasgow sé eitthvað verri seinnipart sumars 2014 en hún er mun dýrari en ella. Þar eigum við við mat, drykk, gistingu og annað það sem heillað getur erlenda ferðamenn. Það er nefninlega í Glasgow sem Samveldisleikarnir sem svo eru kallaðir fara fram frá 23. júlí í tvær til þrjár vikur eða svo.
Samveldisleikarnir eru risastór íþróttaviðburður allra ríkja sem annaðhvort tilheyra eða tilheyrðu Bretlandi þegar sú litla eyja réði lögum og lofum vítt og breitt í heiminum. Þar etja kappi hátt í fjögur þúsund íþróttamenn hvorki meira né minna og búist er við allt að 300 þúsund gestum í viðbót við þann fjölda sem venjulega sækir Glasgow heim þennan tíma.
Efalítið eru einhverjir sem vilja gjarnan komast á slíkan viðburð en reyndin er, eins og sagan hefur ítrekað sýnt og nú síðast í Sochi, að gisting og matur snarhækkar í verði þegar nær dregur enda eftirspurn langt umfram framboð. Á Ólympíuleikunum í London fyrir ári hækkuðu hótel borgarinnar um 40 prósent í aðdraganda þeirra leika að meðaltali og útlit er fyrir að hótel í Sochi í Rússlandi hækki enn meira og brasilískir miðlar eru farnir að skýra frá miklum verðhækkunum þar í landi vegna HM í sumar svo dæmi séu tekin.
Glasgow verður mun dýrari þennan tíma en ella auk þess sem biðraðir eða biðlistar á góð söfn, veitingastaði og annað spennandi lengjast verulega. Fyrir utan öryggisgæslu frá helvíti. Mælum ekki með því.








