Flug til fjögurra borga Evrópu á tilboðsverði hjá Wow Air er í boði næsta sólarhringinn en ferðatíminn er frá páskum og fram til 15. júní. Önnur leiðin með öllum aukagjöldum 13.895 krónur en ekki 12.900 eins og látið er í verði vaka.
Um er að ræða París, Kaupmannahöfn, London og Berlín. Allt fínustu borgir á fínasta tíma og heil fjögur þúsund sæti sögð í boði.
Fyrir utan þá möguleika sem ódýrar ferðir til Evrópu gefa hvað varðar ferðir áfram um álfuna þá er borgarferðir á þessum árstíma æði góðar. Vorið er jú almennt mánuði fyrr á ferð í þessum hluta álfunnar en hérlendis. Golfvellir orðnir iðagrænir og fallegir strax í lok apríl og verðlag enn í lægri kantinum víðast.
Svo er alls óhætt fyrir menningarvita að muna að hin evrópska safnanótt fer fram laugardagskvöldið 17. maí en þá er ekki bara kátt í höllinni heldur söfnum líka. Öll söfn þeirra borga sem þátt taka opin upp á gátt langt fram á kvöld og jafnvel nótt, ókeypis aðgangur hjá flestum og ýmsar uppákomur aðrar í gangi á sama tíma. Sérstaklega í París er Nuit des Musées mikil skemmtun.








