Bæði Icelandair og SAS, sem bjóða fulla þjónustu ef svo má að orði komast, hanga furðuvel í rassgatinu á lággjaldaflugfélaginu Norwegian á flugleiðinni Keflavík – Osló næstu mánuðina samkvæmt nýrri úttekt Fararheill.

Norwegian býður best til Oslóar en SAS og Icelandair eru ekki langt undan

Norwegian býður best til Oslóar en SAS og Icelandair eru ekki langt undan

Við leituðum uppi allra lægstu fargjöld þessara þriggja aðila sem fljúga reglulega milli Keflavíkur og Oslóar næstu þrjá mánuðina og bárum saman. Þessi flugleið er fyrir utan Kaupmannahöfn sú sem mest samkeppni ríkir á þó vissulega megi setja spurningarmerki við samkeppni milli SAS og Icelandair en sérstakur samstarfssamningur er í gildi milli þessara flugfélaga. Sem kannski útskýrir lítinn verðmun á fargjöldum þeirra og kannski ekki. Ekkert skal fullyrt um það.

Taflan hér að neðan sýnir að Norwegian býður lægsta verð á flugi aðra leiðina frá Keflavík til Osló í febrúar, mars og apríl en munurinn er ekki mikill. Hér skal hafa í huga að ein 20 kílóa taska er tekin inn í verð Norwegian og samanburðurinn því eins réttur og hægt er því bæði SAS og Icelandair taka tösku með án aukagjalds.

* Samanburður gerður kl 23 þann 18. janúar 2014 og leitað samtímis á öllum bókunarvélum flugfélaganna þriggja. Í tilfelli Norwegian, sem gefur upp verð í norskum krónum, var fært yfir í íslenskar krónur miðað við miðgengi föstudagsins 17. janúar.