„Við tættum okkur úr rennandi blautum fötunum og fórum í þurr föt. Okkur var nákvæmlega sama þótt þeir innfæddu væru að horfa á okkur.“
Skömmu áður en Anna Mjöll Ólafsdóttir hætti að vera íslenskt smástirni og fór að skapa sér nafn á erlendum vettvangi þvældist stelpan um Tæland ásamt foreldrum sínum í lúxusferð sem reyndist svo alls ekki nein lúxusferð þegar á hólminn var komið.
Um ævintýri hennar þar má lesa í sérstöku ferðablaði Pressunnar sálugu sem út kom 1994 og er gamla fregn dagsins.








