Árið 2013 var tiltölulega gott hvað hreinlæti og aðbúnað í skemmtiferðaskipum varðar ef mið er tekið af heildarfjölda þeirra alvarlegu matareitrana sem skráð voru. Aðeins rúmlega 2.300 farþegar alls veiktust á siglingum það árið en alls 22 alvarleg atvik eru skráð það ár.

Erfitt virðist vera að koma í veg fyrir veirusýkingar um borð í skemmtiferðaskipum.

Erfitt virðist vera að koma í veg fyrir veirusýkingar um borð í skemmtiferðaskipum.

Það kann að virðast töluverður fjöldi alvarlegra atvika en þann stimpil fá aðeins þau tilvik þar sem fleiri en þrjú prósent farþega og eða starfsmanna í hverri siglingu fyrir sig veikist. Ekkert er haldið utan um öll slík atvik og þau því líklega öllu fleiri í heildina.

Langflestir sem veiktust í fyrra fengu svæsna magaverki en oftast nær er þar um nóró-veirusýkingu að ræða. Sú veira skýtur gjarnan upp kollinum þegar hreinlæti er ábótavant og lýsir sér í niðurgangi, ógleði og á stundum magakrampa í verstu tilfellum. Flestir hverjir ná sér á tveimur dögum eða svo en börn og ungmenni geta verið lengur rúmliggjandi en það.

Mikill árangur hefur þó náðst því 2.300 veikindatilfelli er langt undir metárinu 2006 þegar tæplega 7.300 veikindatilfelli voru skráð um borð í skemmtiferðaskipum í 54 ferðum.