Borgaryfirvöld í Beijing í Kína hafa gripið til þess ráðs að sýna myndir af sólinni og bláum himni á gríðarstórum risaskjám á algengum stöðum í borginni.
Talið er að þetta sé gert til að létta lund borgarbúa en þrátt fyrir miklar aðgerðir versnar loftmengun þar og í öðrum stórborgum Kína jafnt og þétt.
Mikil mengun er ekki aðeins leiðinleg fyrir líf almennt í borginni heldur ekki síður fyrir lungu og önnur líffæri og grafalvarlegt sé tekið tillit til að rannsóknir frá síðasta ári staðfesta náin tengsl milli loftmengunar og krabbameins.








