Ferðaskrifstofan Iglu í Bretlandi er þessa stundina að selja alveg ágæta siglingu frá Barcelóna um strendur Spánar og Kanaríeyja.

Svona sigling er byrjun febrúar hljómar ekki illa.

Svona sigling er byrjun febrúar hljómar ekki illa.

Sætti menn sig við gluggalausan klefa og geti hoppað út með litlum fyrirvara er hægt að njóta ellefu nátta um borð, einnar nætur í Barcelóna og flugs til og frá London fyrir litlar 107 þúsund krónur á mann miðað við tvo.

Það er skrambi fínt verð fyrir góða siglingu en fyrirvarinn er skammur því þessi ferð er farin 10. febrúar og því aðeins þrjár vikur til stefnu eða svo. Plúsinn sá að til dæmis Wow Air er að bjóða flug til Englands þessa stundina fyrir 13.895 krónur aðra leið eða innan við 30 þúsund fram og aftur og þannig hægt að fljúga út, stíga um borð og njóta lífsins í ellefu nætur fyrir 140 þúsund krónur á mann.

Og hvað okkur varðar er hreint ekki slæmt að túra í vellystingum um Kanaríeyjar, Madeira og meðfram ströndum Spánar í febrúarmánuði.

Meira um málið hér.