Fyrir tæpum tveimur árum síðan, þann átjánda maí 2012, varð alvarlegt flugatvik þegar eitt hjóla farþegaþotu Icelandair á leið til Bandaríkjanna féll af við flugtak. Vélin snéri við til nauðlendingar og losaði sig við mestallt eldsneyti áður en lending var reynd og allt tiltækt björgunarlið í viðbragðsstöðu. Góðu heilli lenti vélin heilu og höldnu með sína 200 farþega.

Fólk er engu nær um hvað olli því að hjól féll af farþegaþotu Icelandair í maí 2012 og engar upplýsingar gefnar.
Nákvæmlega ekkert er um þetta alvarlega atvik að finna á opinberum vef Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF). Þar er engin bráðabrigðaskýrsla, ekkert á atvikið minnst í ársskýrslu frá 2012 enda hún ekki komin út og þetta atvik er heldur ekki meðal þeirra sem skráð eru til rannsóknar árið 2012. Þaðan af síður finnst neitt á fréttavef RNF en þar eru birtar fréttir af þeim viðfangsefnum sem nefndin fæst við hverju sinni. Það er, með öðrum orðum, eins og ekkert hafi átt sér stað þann 18. maí 2012.
Fararheill kannaði hjá RNF fyrir ári síðan hvernig miðaði rannsókn enda varla léttvægt að hjól detti undan farþegaþotu. Á þeim tíma var okkur tjáð að hinkra eftir ársskýrslu þar sem bráðabrigðaniðurstöður yrðu gerðar ljósar.

Samkvæmt lista RNF yfir flugatvik árið 2012 gerðist alls ekki neitt á Keflavíkurflugvelli þann 18. maí 2012.
Ekkert hefur bólað á árskýrslunni umræddu og mætir Fararheill þögninni einni saman þegar óskað er upplýsinga hjá nefndinni um stöðu málsins nú.
Það er skiljanlegt að rannsóknir taki tíma, jafnvel mörg ár, þegar alvarleg slys verða í flugi og vélarhlutar jafnvel ónýtir eða týndir. En hér er um að ræða vél sem lenti heilu og höldnu. Vél sem hafði einu sinni áður misst hjól og þetta því að endurtaka sig. Vélina og atvikið var hægt að rannsaka strax og það var gert. Hvers vegna er þá slík bið á niðurstöðu? Hvað er vandamálið?
Við hjá Fararheill erum sennilega ekki nógu merkilegir Íslendingar eða ferðalangar til að fá svör um öryggi í farþegaflugi svo kannski taka stærri miðlar við sér. En það er sannarlega athyglisvert að þöggun sé um málið því formaður Rannsóknarnefndarinnar starfar sem flugstjóri hjá Icelandair og báðir rannsakendur RNF störfuðu um tíma fyrir Icelandair eða Flugleiðum eins og það hét.








