Lesendur Fararheill hafa efalítið tekið eftir að af öllum þeim sértilboðum flug- og ferðaskrifstofa sem birst hafa að undanförnu ná engin þeirra yfir páskahátíðina þegar Íslendingar margir elska að leggja land undir fót og eiga frídaga til. En nú brýtur Wow Air ísinn.
Frá sjónarhóli forstjóra ferðaþjónustufyrirtækis er það líklega hámark fávitaháttar að veita afslætti á ferðum yfir páskana. Landinn er vanur að ferðast mikið þennan tíma og hefur hingað til látið flest yfir sig ganga og mun kannski gera áfram. Það væru því aðeins tapaðir peningar að mati forstjórans og ekkert klapp á bakið eða bónusgreiðsla frá hluthöfum fyrir svoleiðis vitleysu.
En þessi gamaldags forstjóri gleymir að landið er lítið, allir þekkja alla, orðið ferðast óvenju hratt á gervihnatta- og netöld og Íslendingar hafa nú um fleiri tækifæri að velja með sífellt fleiri flugfélögum sem hingað koma. Ungi forstjórinn kveikir strax á þessari peru. Afslættir á annatíma munu til skemmri tíma kannski ekki bæta við sjóðina á bankareikningnum en margir muna líka lengi þær ferðaskrifstofur eða flugfélög sem ekki skera sitt við nögl strax og landsmenn eiga möguleika á vikufríi frá vinnu. Goodwill er sterkt að eiga þegar samkeppni harðnar.
Wow Air kynnti í dag tilboðsferðir til Kaupmannahafnar, London, Alicante, Parísar og Berlínar sem gilda í flug frá 1. apríl og alveg fram í maí. Páskafrí flestra þetta árið ætti gróflega að vera frá 14. apríl fram til 22. apríl ef menn er heppnir og þennan tíma er komist til Alicante frá 19.895 krónum og hinna fjögurra borganna frá 15.895 krónum.
Berum það saman við hraðtilboð Icelandair í dag til einna níu borga en eina landið sem hægt er að heimsækja yfir þennan tíma á tilboði þar er Noregur. Og með virðingu fyrir fokdýra Noregi er páskafrí í Stafangri eða Þrándheimi varla málið fyrir þorra almennings. Þó skárra en síðustu hraðtilboð Icelandair sem við greindum frá.
Gott mál í alla staði hjá Wow Air. Nú er ísinn brotinn.








