Flugfélagið Wow Air auglýsir grimmt þessi dægrin og meðal annars á heilum tíu síðum í nýjasta hefti Fréttatímans. Þar kemur eitt nokkuð á óvart.

Ekki lengur fólksins. Helsta Slagorð Wow Air beint á ruslahaugana.

Ekki lengur fólksins. Helsta Slagorð Wow Air beint á ruslahaugana.

Wow Air virðist hætt að vera „flugfélag fólksins“ ef marka má nýjustu auglýsingaherferðina. Þetta helsta slagorð flugfélagsins á nýliðnu ári virðist hafa fokið út í veður og vind sísona. Það er hvergi að finna í auglýsingum lengur  né á vef félagsins.

Sem kannski sýnir best hversu innantómt kjaftæði það var í upphafi að blása sig þannig út. Eða kannski hafði umfjöllun Fararheill eitthvað um þetta að segja eins og svo margt annað hjá þessu félagi eins og sjá má hér og hér og hér og hér og hér.