Nýjasta slagorð Wow Air er flugfélag fólksins hvorki meira né minna samkvæmt nýjustu auglýsingum sem er stórundarlegt mottó þegar tekið er tillit til að Wow Er alls ekki flugfélag.

Flugfélag fólkins er hvorki flugfélag né fólksins.

Flugfélag fólkins er hvorki flugfélag né fólksins.

Hafi það farið framhjá auglýsingagúrúum Hvíta hússins sem hannar auglýsingar Wow Air sótti Wow um flugrekstrarleyfi hér síðasta vetur og það með svo miklu pompi og prakt að um það var fjallað duglega á öllum fjölmiðlum.

Það kunna að vera sniðugir menn á auglýsingastofunni en það kallast bara lýgi samkvæmt orðabókinni að kalla eitthvað flugfélag sem er það ekki.

Og flugfélag fólksins í þokkabót? Gaf fólkið í landinu leyfi sitt fyrir slíku. Ekki allavega þeir fjórir sem skipa ritstjórn Fararheill.is. Varla heldur Björk Eiðsdóttir sem hætti störfum hjá Séð og heyrt eftir að einn ríkasti maður Íslands, Skúli Mogensen, sem jafnframt er forstjóri Wow Air, hótaði öllu illu ef birtar yrði fregnir um skilnað hans. Fararheill er reyndar hissa að hann skyldi ekki hóta neinum vegna umfjöllunar um nýtt samband hans fyrir skömmu. En við vitum af fleiri hótunum fyrirtækisins gegnum tíðina.

Væri Wow raunverulega flugfélag fólksins dytti forsvarsmönnum fyrirtækisins ekki í hug annað en tiltaka ÖLL gjöld og skatta þegar talin eru skattar og gjöld. En hjá Wow eru skattar og gjöld ekki ALLIR skattar og gjöld.