Lipurð og tillitssemi er farin veg allrar veraldar ef marka má atvik sem átti sér stað við innritunarborð Wow Air í Gatwick fyrir skömmu. Þar var einstakling með aukatösku hótað að verða vísað út úr flugstöðinni ef viðkomandi greiddi ekki tæpar sex þúsund krónur fyrir aukatöskuna. Aukatösku sem var tóm.

Það vill enginn skipta við fyrirtæki þar sem lipurð er nákvæmlega engin.

Það vill enginn skipta við fyrirtæki þar sem lipurð er nákvæmlega engin.

Viðkomandi aðili hafði keypt sér nýja handfarangurstösku í London áður en lagt var í hann út á flugvöll og hent sinni gömlu. Hann var því með eina handfarangurstösku meðferðis sem mældist vera heil 9 kíló að þyngd. Nema að tilboð var á töskunni nýju sem hann hafði keypt og því fylgdi önnur aðeins minni handfarangurstaska frítt með. Sú var brotin saman, í upprunalegum lokuðum umbúðum og vóg nokkur hundruð grömm.

Ekki kom til greina að leyfa viðkomandi að taka töskuna tómu með í vél Wow Air án greiðslu og skipti engum togum að afgreiðslumaðurinn hótaði fylgd út úr flugstöðinni þegar óskað var eftir skilningi á málinu. Tæplega sex þúsund króna greiðsla er jú dýrkeypt fyrir tóma tösku.

Þegar það var ekki tekið í mál buðust minnst tveir aðrir farþegar á eftir í röðinni að taka töskuna. Þar á meðal hjón sem greitt höfðu fyrir aukatösku fyrirfram en reyndust ekki hafa þörf fyrir þá heimild. Það kom heldur ekki til greina. Greiðsla skyldi fara fram ellegar færi viðkomandi ekki með vélinni til Íslands.

Fararheill hefur fengið þessa frásögn staðfesta en haft var samband við okkur vegna málsins. Lítið þýðir að reyna að óska upplýsinga hjá Wow Air því þar hefur Fararheill verið í straffi um langt skeið.

Það verður að segjast að ef ekki er skilningur og lipurð hjá flugfélagi á sérstökum aðstæðum fólks er fokið í flest skjól. Það hefur jú verið raunin meðal Íslendinga lengi vel í sólarlandaferðum til dæmis að sé einhver með yfirvigt eða of margar töskur hafa aðrir farþegar gjarnan hlaupið undir bagga og sjaldan verið vandamál. Það er bara kurteisi og vinalegt af hálfu ókunnugra.

Auðvitað tapar flugfélagið kannski einhverjum peningum en á móti kemur að með því að standa naglföst á reglum getur fyrirtækið misst miklu meira en 30 pund. Í öllu falli ætla þeir fjórir sem samferða voru manninum sem ekki fékk að fara í loftið án þessa að greiða fullt gjald fyrir tóma tösku ekki að fljúga með Wow Air á nýjan leik.