Það kann að vera að það hafi farið framhjá okkur en við allavega höfum ekki rekið augun í þessi ferðatilboð Nazar áður. Ferðaskrifstofan auglýsir Tyrklandsferðir á nokkrum dagsetningum á mun lægra verði en aðrar ferðir en það hangir þó á spýtunni að fólk veit ekkert hvar það gistir fyrr en lent er á áfangastað.nazar

Þeir flokka þetta sem „ótilgreind hótel“ á vef sínum og taka fram að í þessum pakka séu hótel sem alla jafna eru ekki í boði hjá ferðaskrifstofunni.

Ekkert spánnýtt við þetta fyrirkomulag enda innlendar ferðaskrifstofur boðið sama hlut lengi vel en fyrir alla þá sem aðeins vilja komast í sól og á strönd fyrir sem allra minnstan pening er þetta ágæt hugmynd.

Þarna má finna eins og sjá má á meðfylgjandi skjámynd fjórtán daga dvöl allt niður í 90 þúsund krónur ef farið er fljótlega eða vikuferð allt niður í 72 þúsund á mann. Kvartar enginn yfir þeim prís.

naz