Fararheill hefur skammast yfir því lengi vel að innlendar ferðaskrifstofur sem þurfa að selja laus sæti skammt fyrir brottför gera afskaplega lítið af að slá af verðinu. Þvert á móti er oftar en ekki sama verð á ferðum með engum fyrirvara og sé bókað mörgum mánuðum fram í tímann.

Ágætt ferðatilboð Vita í bði nú til Bodrum

Ágætt ferðatilboð Vita í bði nú til Bodrum

Sem er galið í öllu tilliti því laust sæti er dautt sæti í áætlunarferð. Tapið lendir á ferðaskrifstofunni sem þarf á móti að hækka aðrar ferðir. Nær lagi er að leyfa þeim er geta komist með litlum fyrirvara að fara og njóta lífsins og ferðaskrifstofan sker tapið úr dæminu jafnvel þó hagnaður verði minni. Allir vinna.

Svo virðist sem forráðamenn Vita hafi lesið Fararheill og tekið til sín því fyrirtækið auglýsir nú fjórtán daga ferð til Bodrum í Tyrklandi nú 12. júní og það sem meira er; slær verulega af uppsettu verði. Verðmiðinn á mann í ferðina nú er 137.400 krónur en meðalverð á þessari ferð í sumar á manninn er kringum er tæplega 170 þúsund krónur.

Það er sparnaður upp á 32 þúsund krónur á manninn og munar um minna. Gott framtak hjá Vita og hafi einhver hug að drífa sig af stað er ráð að skoða vegvísi okkar um Bodrum.