Við höfum gist á hörðu moldargólfi í trjákofa í Kenía, deilt herbergi (óafvitandi) með kóbraslöngu á Indlandi og fengið úthlutað herbergi í Túnis þar sem ekki aðeins voru blóðblettir á rúminu heldur og samfélag undarlega stórra köngulóa í sturtunni. Allt það tökum við framyfir að gista á hörmulegustu hótelum sem finnast í stórborgum heimsins.

Vel yfir þúsund hótel er að finna í London. Sum þeirra dýrari fá herfilega einkunn hjá notendum

Vel yfir þúsund hótel er að finna í London. Sum þeirra dýrari fá herfilega einkunn hjá notendum

Ástæðan einföld; í smáþorpum í fátækari löndum er erfitt og kannski vonlaust að færa hluti til betri vegar. Hótelrekendur í stórborgum á borð við London, París, Barcelona, Róm og Stokkhólmi hafa enga slíka afsökun. Þeir eru annaðhvort latir eða alveg sama.

Þökk sé netinu og vilja ferðafólks til að gefa stundarkorn af tíma sínum til að gefa viðburðum eða gististöðum einkunn á vefum eins og Tripadvisor eða Virtual Tourist hefur aldrei verið auðveldara að forðast léleg hótel eða viðbjóðslega framkomu. Slíkir gististaðir fá fljótt á sig slæmt orð meðal netverja.

Það vekur því pínu athygli sé flett gegnum lista Tripadvisor á hótelum í London að við botninn er merkilega oft að finna dýrari hótel sé mið tekið af verðlagi í júlímánuði.

Það á til dæmis við um Ascot Hyde Park Hotel sem rétt slefar í eina og hálfa stjörnu af fimm mögulegum en lágmarksverð á herbergi yfir sumartímann er 32 þúsund krónur. Annað nálægt hótel með sterkt nafn er Regency Court Hotel. Þar kostar nóttin að lágmarki 32 þúsund krónur en hótelið atarna er númer 999 af alls 1027 hótelum í London. Fjögurra stjörnu Kensington Park Apartments fær feita falleinkunn hjá notendum og aðeins eina stjörnu af fimm. Lágmarksverð þar á bæ 29 þúsund krónur nóttin. Sömu sögu er að segja af Eaton Square Hotel sem notendur gefa eina og hálfa stjörnu þrátt fyrir að heimta tæpar 30 þúsund krónur fyrir gistingu eina nótt. Park Hotel, þar sem nótt í júlí í venjulegu herbergi fer upp í 75 þúsund krónur fær líka eina og hálfa stjörnu hjá notendum.

Málið er því að láta ekki endilega blekkjast af fínlegu nafninu, frábærri staðsetningu eða jafnvel opinberri stjörnugjöf. Mörg „flott“ hótel eru mun verri en ódýrari og ófínlegri hótel.