Það er sjálfskipað flugfélag fólksins, Wow Air, sem er svarti sauður ársins 2014 sé tillit tekið til fjölda kvartana fólksins og ekki síður hversu margar þeirra kvartana enduðu á að flugfélaginu var gert að greiða skaðabætur þrátt fyrir mótbárur.

Flugfélag Skúla Mogensen hafnaði öllum bótakröfum þetta árið en tapaði þeim undantekningarlaust.  Mynd Wow Air

Flugfélag Skúla Mogensen hafnaði öllum bótakröfum þetta árið en tapaði þeim undantekningarlaust. Mynd Wow Air

Fararheill hefur tekið saman kvartanir og kærur sem bárust Flugmálastjórn á þessu ári sem nú er að líða og þar stendur flugfélag fólksins sig langverst gagnvart fólkinu sínu.

Tæplega 30 kærur á hendur Wow Air voru teknar fyrir þetta árið en eitthvað af þeim málum er frá árinu 2013. Allflestar þeirra snérust um bætur vegna tafa á flugi og er skemmst frá því að segja að Wow Air tapaði öllum þeim málum hjá Flugmálastjórn.

Næstverst hvað fjölda kvartana varðaði er Primera Air hans Andra Ingólfssonar. Einar tólf bótakröfur voru gerðar á hendur því flugfélagi sem teknar voru fyrir þetta árið og skal engum koma á óvart að Primera tapaði öllum málunum. Það er nokkuð í takti við fyrri ár. Sömuleiðis hér snérust kvartanir um tafir og bætur þess vegna.

Þriðja flugfélagið sem fékk kærur á sig og tapaði þeim flestum er easyJet. Þar var þó aðeins um fjögur mál að ræða.

Það er hins vegar Icelandair sem stóð sig framúrskarandi vel sé tekið mið af málum á borði Flugmálastjórnar. Aðeins tvívegis var það fyrirtæki dæmt til greiðslu skaðabóta þetta árið.

Öll ofangreind flugfélög brutu líka í öllum tilfellum lög er kveða á um að tilkynna skuli farþegum um rétt þeirra þegar tafir eða breytingar verða á flugi. Enn eitt árið er það bara skamm, skamm og svo gleymt og grafið. Herða þarf löggjöfina til muna og beita sektargreiðslum svo viðskiptavinir flugfélaganna njóti þeirrar verndar sem lög kveða á um. Nema þetta sé bara upp á punt eins og svo margt annað í neytendalöggjöfinni.

Hafa skal í huga að úrskurði Flugmálastjórnar má kæra til innanríkisráðuneytisins. Ekki liggur fyrir hjá ráðuneytinu hvort það hafi verið gert né hvort niðurstaða liggi fyrir.