Það er ekki allt unnið með sældinni. Né heldur er ýkja margt unnið með að gefa mannréttindum og virðingu löngutöng árum saman og það með bullandi þjósti.

Ferðaþjónusta í Ísrael á langt í land.

Ferðaþjónusta í Ísrael á langt í land.

Að því hafa Ísraelar komist fyrir löngu en kannski ekki alveg vaknað til meðvitundar um að samkvæmt alþjóða könnunum er þessi herskáa þjóð sem treður alþjóðlög niður í svaðið árum saman, beitir kúgaða nágrannaþjóð ítrekað hryðjuverkum  og virðist slétt sama, ekki ýkja vinsæl meðal þegna heimsins.

Þvert á móti er þetta ein óvinsælasta þjóð heims samkvæmt alþjóðakönnun BBC og könnunum sem gerðar hafa verið í ESB-löndunum. Þá þykir afleitt að heimsækja landið samkvæmt ferðakönnunum World Economic Forum sökum dýrtíðar og almennrar ókurteisi gagnvart ferðafólki.

Nú hafa ferðamálayfirvöld landsins blásið í aðvörunarlúðra eftir að ítarlegasta úttekt á ferðaþjónustu í landinu var gerð opinber nýlega. Þar kemur í ljós að sá iðnaður hefur vaxið um 110 prósent á síðustu 25 árum en þá eru góðu fréttirnar upptaldar.

Þar kemur nefninlega á daginn að túrismi í nágrannaríkjum yfir sama tímabil hefur vaxið margfalt meira. Dæmi skal tekið af Tyrklandi sem aðeins hefur auglýst land sitt af alvöru síðustu fimmtán árin og á 25 ára tímabili hefur gestafjöldi þar í landi aukist um 7300 prósent. Bæði Egyptaland og Jórdanía státa af rúmlega tvö þúsund prósenta aukningu ferðamanna yfir sama tímabil.

Verst þykir að þrátt fyrir að fjöldi gesta til Ísrael hafi aukist nokkuð hefur á sama tímabili orðið helmingsfækkun á hótelum landsins á sama tíma. Ferðamenn eyða ekki peningum sínum í dýr hótel í Jerúsalem en brúka í staðinn mun ódýrari hótel sem finnast í Betlehem sem tilheyrir Palestínu.