Afskaplega er leiðigjarnt þegar auglýsinga- og markaðsfræðingar búa til fallegar umbúðir utan um innantómt kjaftæði. Eins og raunin er hjá Wow Air þennan daginn.

Afar lítið sætisbil í nýjum vélum Wow Air. Mynd Wow Air
Í vikublaðinu Fréttatímanum eyðir Wow Air miklu púðri í auglýsingar. Nánast svo mikið að halda mætti að Fréttatíminn væri fylgiblað en ekki öfugt. Þar kemur ýmislegt fram um nýjar vélar flugfélagsins. Til dæmis um sætisbil í þeim vélum sem fljúga farþegum til Bandaríkjanna og heim aftur. Þar kemur meðal annars fram þetta:
„Í flestum gerðum flugvéla er lágmarksbil milli sæta u.þ.b. 28″ nema við innganga. Í Airbus A321 vélum Wow Air verður lágmarkssætisbil 30″ svo vel fari um alla. Fyrir þá sem vilja aðeins meira pláss verður hægt að tryggja sér sæti með XL fótaplássi, allt að 36″, gegn örlitlu aukagjaldi.“
Hvað skal segja? Ofangreint er að mestu þvæla út í eitt. Tökum þetta skref fyrir skref:
♦ Lágmarksbil milli sæta fer eftir flugfélögum en ekki gerðum flugvéla.
♦ 28″ sætisbil er það minnsta sem boðið er upp á í flugheimum. Ekkert flugfélag vogar sér að bjóða minna bil en það.
♦ Ekkert flugfélag býður svo lítið sætispláss á lengri flugleiðum eins og flug frá Keflavík til Washington sannarlega er. Þá er 30″ sætisbil lágmarkið svo Wow Air er í raun að bjóða minnsta sætispláss sem hægt er í lengra flugi. Wow Air þar á pari við Ukraine Airlines og Air Malta. Eina undantekningin á þessu hjá Air Asia en þar um slóðir er fólk líka aðeins minna að meðaltali en í vestrænum löndum. Hefðin í lengra flugi er að lágmarki 32″ og meira að segja Norwegian fer ekki neðar en 31 tommu í langflugi en flest sæti þeirra á almennings farrými eru þó 32 tommur. Lágmarkið hjá Icelandair er líka 32 tommurnar.
♦ Það sem Wow Air kallar „örlítið aukagjald“ getur kostað allt að 3.499 krónum aðra leið fyrir sæti með hvað mestu plássi. Allt að sjö þúsund krónum aukalega fyrir gott fótapláss fram og aftur til Bandaríkjanna er vægast sagt vel í lagt þegar flugfélagið auglýsir fargjöld allt niður í 35 þúsund krónur báðar leiðir.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem „flugfélag fólksins“ kallar nýju föt keisarans hin glæsilegustu klæði. Sem stemmir ekki við að vera fólksins. Þá ber maður virðingu fyrir hugsanlegum viðskiptavinum og kemur heiðarlega fram við „fólkið“ sitt. Er það svo vitlaus hugmynd?







