Fáir eru fremri Bandaríkjamönnum þegar kemur að tómu rugli. Nú hefur komið í ljós að sá fríði flokkur fólks sem á að tryggja öryggi í flugi vestanhafs hefur um árabil elt ólar við óra kynóðs yfirmanns og öryggi setið á hakanum.

Vopnaðir lögreglumenn fljúga um loftin blá vestanhafs en ekki endilega til að gæta öryggis.

Vopnaðir lögreglumenn fljúga um loftin blá vestanhafs en ekki endilega til að gæta öryggis.

Óljóst er hversu margir himins þjónar, air marshals, eiga að tryggja öryggi í farþegaflugi vestanhafs en þeir fljúga um í farþegaþotum til öryggis og það vopnaðir. Lögum samkvæmt á minnst einn slíkur að vera um borð í öllum flugferðum þar sem búast má við að einhver óljós hætta sé meiri en ella samkvæmt þar til gerðri forskrift.

Allur gangur hefur þó verið á því vegna þess að yfirmaður þessa hóps hefur um langt skeið haft sína eigin hentisemi og það í því skyni að komast í náin kynni við undirmenn sína. Rannsóknarblaðamenn Reveal komust að því að háttsemi yfir 60 flugöryggisþjóna er til rannsóknar vegna þessa. Allt sökum þess að yfirmaðurinn virðist hafa verið kynlífsóður og skipulagt vaktir og ferðir ekki eftir öryggiskröfum heldur greddu.

Þetta í ofanálag við fregnir að tollverðir og flugvallastarfsmenn hafi gert að leik sínum að skoða nakið fólk með aðstoð líkamsskanna bendir til að eitthvað mikið sé rotið vestanahafs.