„Að sjálfsögðu nýttum við tækifærið til að skoða sætar stelpur en mest um vert var þó að klefinn nýttist frábærlega til að eiga ljúfa stund með samstarfsfélaga af hinu kyninu án þess að nokkur truflaði.“

Líkamsskannarnir sem um ræðir hafa nú verið teknir niður víðast hvar enda ekki aðeins vanvirðing við flugfarþega heldur og meingallaðir.
Allar þær áhyggjur sem hafðar voru uppi þegar bandaríska samgönguöryggisstofnunin, TSA, ákvað að setja upp svokallaða líkamsskanna á velflestum flugvöllum landsins virðast hafa verið á rökum reistar. Í það minnsta ef marka má fyrrum starfsmann sem skrifað hefur grein um málið sem vakið hefur mikla athygli vestanhafs því þar staðfestir maðurinn að ekki var sérstaklega mikil virðing borin fyrir flugfarþegum.
Grein mannsins, Jason Edward Harrington, hefur birst víða en tímaritið Politico birti hana fyrr á þessu ári. Lesturinn um störf þeirra sem vinna að gæslu á flugvöllum Bandaríkjanna á ekki að koma fólki á óvart enda störfin illa launuð og vinnutíminn langur og það tvennt er ávísun á minna en fagmennsku hvað sem starfið heitir.
Ekki einungis gerðu tollverðir grín og gaman að fólki sem varð að fara gegnum umrædda skanna sem sýna alla berrassaða heldur notuðu klefann sjálfan til að fá frið frá yfirmönnum. Stundum til að njóta samstarfsfélaga.
Góðu heilli reyndust skannarnir sjálfir meingallaðir sem var ástæða þess að þeir hafa verið að mestu teknir úr umferð en eftir að greinin birtist hafa fleiri fyrrum starfsmenn TSA stigið fram og vottað að frásögnin sé mikið til rétt.







