Það er alltaf eitthvað dásamlegt í loftinu við Napolíflóa á Ítalíu og þangað er nú hægt að komast í nokkuð safaríka vikuferð á fínasta hóteli á næstunni fyrir 76 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

Sorrento er næsti bær við hina rómuðu Amalfi strönd á Ítalíu og nóg þar um að vera. Mynd scott1723

Sorrento er næsti bær við hina rómuðu Amalfi strönd á Ítalíu og nóg þar um að vera. Mynd scott1723

Þar er um að ræða fjögurra stjörnu hótel örskammt frá Sorrento með fyrsta flokks útsýn yfir Vesúvíus. Hótelið með sína eigin afviknu strönd til afnota fyrir gesti og hótelskutlu líka vilji gestir kíkja aðeins út á lífið. Hálft fæði í ofanálag og það dugar nú flestum á Ítalíu enda maturinn ekki af verri endanum og vel útilátinn.

Sorrento er steinsnar frá frægustu strönd Ítalíu, Amalfi, og ekki er langt að fara til Napolí heldur.

Tilboð þetta í boði hjá bresku ferðaskristofunni Fleetway og gildir á ýmsum dagsetningum langt fram á sumar eins og sjá má hér. Með flugi til og frá London er heildarkostnaðurinn á parið um það bil 220 þúsund krónur eða svo.

Til samanburðar er löngu uppseld vikulöng Ítalíuferð Úrval Útsýn í júní þar sem kostnaður á hvern einstakling var 192.600 krónur eins og sjá má hér.