Wow Air aflýsti í dag flugi sínu til Boston í Bandaríkjunum og sömuleiðis flugi sínu til baka skýringalaust. Verra þó að fjölmargir farþegar fengu ekkert að vita fyrr en löngu síðar.

Óhuggulega fram komið við farþega Wow Air í Boston. Skjáskot
Ekki finnst stafur um truflun á flugi Wow Air á vef þeirra. Hvorki þeim íslenska né erlendum vefum þeirra. Samt fór vél þeirra ekki til Boston í dag þar sem fluginu var aflýst. Flugi sem átti að leggja af stað vestur um haf 15:30 síðdegis.
Ekki gott mál en ekki heimsendir heldur. Það geta komið upp þær aðstæður að fella verður flug niður og oft vegna óviðráðanlegra orsaka. Það er hins vegar óafsakanlegt að láta ekki viðskiptavini vita og það eins fljótt og auðið er svo þeir geti í það minnsta gert aðrar ráðstafanir.
Eins og hópur fólks á flugvellinum í Boston sem fékk skilaboðin um aflýsingu flugsins rúmlega klukkustund fyrir brottför þrátt fyrir að vél Wow Air hafi aldrei farið í loftið frá Keflavík. Íslandsferð þeirra út í veður og vind á augnabliki og tengiflug annarra sömuleiðis.
Þetta er kostuleg þjónusta og fyrir neðan allar hellur hjá flugfélagi sem stærir sig af góðri þjónustu og að vera flugfélag fólksins. Mátti ekki láta fólk vita og jafnvel hafa samband við Icelandair sem líka flýgur til og frá Boston með að græja fólkið yfir?
Skúli. Girða sig strákur. Þetta er óboðlegt.







