Ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz Air færir út kvíar hérlendis en flugfélagið hefur í sumar boðið beint flug milli Gdansk og Keflavíkur. Næsta sumar bætist Varsjá í hópinn.

Fleiri áfangastaðir næsta sumar með Wizz Air.

Fleiri áfangastaðir næsta sumar með Wizz Air.

Það hefur kannski lítið farið fyrir Wizz Air enda hvorki Gdansk né Pólland vinsælir áfangastaðir Íslendinga. Þó er Pólland eitthvert ódýrasta land Evrópu að heimsækja og þar krökkt af forvitnilegum hlutum.

Wow Air hefur boðið beint flug til Varsjár um skeið og það gengið vel enda þúsundir íbúa hérlendis frá Póllandi og þeir vilja til síns heima reglulega. Aukin samkeppni mun því líklega lækka verð lítillega á þessari flugleið í framtíðinni.

Fyrir þau ykkar sem óhrædd eru að kanna nýjar slóðir þá er risastór plús hvað allt er ódýrt í Póllandi. Verðlag hér með því allra lægsta í Evrópu. Það því töluvert betra að versla hér en til dæmis í Boston eða Glasgow.