Nú rennur upp sá tími þegar rysjótt veðurfar fer meira og meira í taugar Íslendinga. Þá er ekki úr vegi, hafi fólk tækifæri til, að smella sér í langt og gott sólarfrí á Kanarí.

Engir vindar, ekkert frost og engin lárétt úrkoma. Kanarí í vetur

Engir vindar, ekkert frost og engin lárétt úrkoma. Kanarí í vetur

Bæði Heimsferðir og Úrval Útsýn eru að auglýsa þessa stundina sértilboð á lengri ferðapökkum til Kanarí og báðir pakkar á viðráðanlegu verði í beinu flugi.

Ferð Heimsferða er svokallað „stökktu“ tilboð þar sem hótelnafn fæst ekki uppgefið fyrr en komið er að brottför. Enginn þarf að hræðast slíkt mikið. Fararheill nánast eingöngu heyrt jákvæðar umsagnir um slíkar ferðir. Ferðaskrifstofan veit líka að landinn lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Hægt er að kaupa slíka átján daga ferð með brottför 30. október án fæðis niður í 113.900 krónur á mann eða 227.800 á parið. Það gerir 12.600 krónur rúmlega hver og einn dagur fyrir tvo. Meira hér.

[alert type=alert]Það er reyndar ekki heiglum hent að bóka þessa tilboðsferð Heimsferða. Við reyndum bókun á umræddum tímasetningum en þá var ferðalengd ekki í boði eða uppseld þrátt fyrir að nóg væri af sætum í boði. Kannski er það trix svo fólk þurfi að hringja og bóka en við það bætist ofan á bókunargjald. Þá kemur hvergi fram hvort farangur er innifalinn í þessari ferð.[/alert]

Ferð Úrval Útsýn er enn lengri eða 24 dagar og það í tæka tíð fyrir jólin. Brottför þann 28. nóvember og heim aftur þann 22. desember eða nánast þráðbeint í jólasteikina. Hér er hótelið ekkert leyndó heldur hið ágæta Dunas Mirador á Maspalomas við ensku ströndina. Hálft fæði með í pakkanum og þessi ferð kostar manninn 199.900 krónur eða 399.800 á parið. Það gerir 16.600 krónur per dag á tvo saman. Meira hér.

[alert type=alert]Fólki kann að finnast mikill verðmunur á þessum ferðum en hafa ber í huga að tvær máltíðir eru innifaldar hjá ÚÚ en ekkert slíkt í ferð Heimsferða. Hvort tvö þúsund krónur er mikið eða lítið fyrir tvær máltíðir per dag á mann verður hver og einn að gera upp við sig. Fyrir sitt leyti mælir Fararheill með gistingu án fæðis því það er hræbillegt að fara út að borða á Kanarí og yfirleitt alltaf betra en hlaðborðspakkar hótelanna.[/alert]