Við hljótum að geta verið sammála um eitt: Alicante er vel fjarri því að vera nafli alheimsins. Samt er það nokkurn veginn eini staðurinn á Spáni þangað sem við getum flogið í reglulegu áætlunarflugi yfir háveturinn. Eða hvað…

Jól í Barcelona. Ramblan auðvitað skreytt og skemmtileg og borgarbúar töluvert minna stressaðir en yfir sumartímann enda mun færri ferðamenn. Mynd Ajuntament de Barcelona

Jól í Barcelona. Ramblan auðvitað skreytt og skemmtileg og borgarbúar töluvert minna stressaðir en yfir sumartímann enda mun færri ferðamenn. Mynd Ajuntament de Barcelona

Það líður að lokum áætlunarferða Wow Air til Alicante þennan veturinn en þangað eða þaðan eru engar flugferðir í boði í desember, janúar eða febrúar og ekki næst fyrr en síðast í marsmánuði. Sömuleiðis er Icelandair löngu hætt beinu flugi til Spánar.

Sem er argasta synd því fjöldi fólks á íbúðir og hús í grennd og efalítið eru margir til í að skipta út stressuðum, köldum og dimmum jólum eða vetrarmánuðum á Íslandi fyrir nærbuxnaveður í Alicante í desember.

En nótt er ekki úti öll.  Spænska lággjaldaflugfélagið Vueling, sem Fararheill mælir með án þess að hika, ætlar að fljúga örfáar ferðir milli lands og eyja, Íslands og Spánar, yfir jólahátíðina ef einhver getur ekki á sér heilum tekið nema komast út. Fargjaldið reyndar nokkuð frá því að vera lággjalda enda flugferðirnar fyrst og fremst ætlaðar Spánverjum sem vilja sjá Íslendinga fagna jólum og áramótum og fá sæti eftir þegar þetta er skrifað.

Engu að síður, ef og vill, er hægt að planta rassi í sæti í vél spænska flugfélagsins aðra leiðina allt niður í 28 þúsund krónur eða 60 þúsund fram og aftur um jól og áramót. Sem er þegar öllu er á botninn hvolft ekkert hræðilega mikið dýrara en almennt gerist. Jafnvel þó svo sé þá má ekki gleyma að það er 34% lægra verð á almennum vörum í verslunum þar en í höfuðborginni okkar hér í ballarhafi. Svo er ekki beint leiðinlegt að njóta áramótanna í Barcelona.