Bullið sem upp veltur hjá sumum ferðaskrifstofum er á pari við þruglið í lágtvirtum forsætisráðherra landsins. Nú er ferðaskrifstofa Icelandair, Vita ferðir, að blása í lúðra út af „nýjum og spennandi“ áfangastað: Mallorca.

Mallorca er til margra hluta nytsamleg og ljúf. Þangað er farið næsta sumar í skipulögðum ferðum á nýjan leik.

Mallorca er til margra hluta nytsamleg og ljúf. Þangað er farið næsta sumar í skipulögðum ferðum á nýjan leik.

Okkur hjá Fararheill rekur minni til að Úrval Útsýn hafi einnig notað „nýr og spennandi áfangastaður“ árið 2012 þegar sú ferðaskrifstofa bauð þangað ferðir eftir stutt hlé. Sömuleiðis voru skilaboðin frá Heimsferðum á sama pari þegar sú bauð ferðir til Mallorca 2009. Gott ef ekki líka Samvinnuferðir/Landsýn hér á árum áður.

Gallinn sá að 70 prósent landans hafa heimsótt Mallorca sem var áfangastaður númer eitt, tvö og þrjú héðan í heilan áratug og gott betur fyrir nokkrum árum. Flest okkar eiga gamlar hallærislegar myndir af sér á einhverjum afdala veitingastað á þeirri eyju.

Sem sagt, afar fátt „nýtt og spennandi“ við flug og ferðir þangað og óþarfi að kasta svo ódýru ryki í augu fólks. Reyndar undarlegt að bjóða þangað ferðir með tilliti til að Úrval Útsýn hætti því fyrir tveimur árum þar sem ferðir og gisting þar voru orðnar of dýrar.

Vissulega er verðlag á eynni töluvert hærra en það var áður fyrr en það er líka reyndin heima á Fróni. Samkvæmt nýjustu tölum er verðlag almennt á Mallorca 48 prósentum lægra en það er í Reykjavik þegar þetta er skrifað. Með öðrum orðum, þá er 25 prósent lægra verð á vörum á Mallorca en fást á tax-free dögum Hagkaupa. Auðvitað munar heilmikið um slíkt og sjálfsagt að versla erlendis eins og hver getur betur.

Vita auglýsir ferðir sínar miðað við fjóra einstaklinga og gefur lægsta verð 89.900 krónur á kjaft en haldi par eða hjón í ferð er ráð að miða við 125 – 135 þúsund krónur á hvorn haus.

Það er lítið mál að komast til Mallorca á ódýran hátt og enn minna mál að bóka fínustu hótel á allra besta verði og spara þannig tugþúsundir samtals. En það kostar smá vesen. Annars vegar að millilenda í Bretlandi og halda þaðan beint til eyjunnar ellegar fljúga til Barcelona og fara yfir með ferju. Slíkt í viðbót við að negla einhver af þeim tilboðum sem reglulega finnast á hótelbókunarvef Fararheill tryggja Mallorca-dvöl töluvert undir því verði sem Vita auglýsir. En á móti kemur að engar eru tryggingar og vesen á kannski ekki upp á pallborðið í sumarfríinu.