Við hjá Fararheill erum rammsek um að hafa otað okkar tota. En ólíkt 99.9 prósent annarra sem það gera þá erum við ekki að benda á hótelbókunarvél okkar til þess eins og moka inn seðlum og glotta út að eyrum í næsta banka. 

Vertu velkomin og það á lágmarksverði ALLTAF.

Vertu velkomin og það á lágmarksverði ALLTAF.

Við erum að því sökum þess að þar finnurðu allra bestu hóteltilboð heims aftur og aftur og aftur og aftur. Þú sparar!

Þú þarft ekki einu sinni að taka okkar orð fyrir þessu. Allir geta skoðað óskarsverðlaunahátíð ferðaiðnaðarins, World Travel Awards, sem valdi þá leitarvél sem Fararheill býður sem þá allra bestu í veröldinni á síðusta hátíð.

En þú þarft ekkert að skoða það. Aðalatriðið er að ef þú eyðir eins og fimm mínútum að gera verðsamanburð þá kemstu að því að hvergi finnst lægra verð en hjá okkur. Ósköp einfaldlega vegna þess að vélin okkar leitar alls staðar. Við finnum öll bestu tilboðin sem hótelvélar Icelandair, Wow Air og Dohop bjóða, enda nota öll sömu leitarvél, og við finnum fjölda annarra tilboða að auki sem mörg hver eru enn betri. Í sumum borgum eru helmingi fleiri gististaðir í boði en finnast á vélum annarra. Meira úrval, lægra verð.

Hvers vegna er það að ofangreindir stóru aðilar eru EKKI að bjóða sömu hótelleit og Fararheill kannt þú að spyrja og réttilega. Það er jú ekkert nema hin besta þjónusta að bjóða bestu hótelleitarvélina og eru ofangreind fyrirtæki ekki að reyna að bjóða sem besta þjónustu? Jú, nema að sumir sjá ekki annað en peninga og risa leitarvélarnar greiða mun hærri prósentur en litlir bílskúrsaðilar. Þú sem sagt greiðir meira svo flugfélögin fái meira.

Allra nýjasta nýtt í bransanum finnst líka aðeins hjá okkur. Það er direct booking á hinu engilsaxneska eða milliliðalaus bókun. Hótelleitarvél Fararheill er nefninlega sú fyrsta sem leitar einnig á eigin vefsíðum hótela heimsins en eins og við höfum skrifað um áður geyma mörg hótel í dag sín bestu tilboð fyrir sína eigin vefi og leyfa alls ekki bókunarvélum að koma þar nálægt. Nema okkar.best

Þetta er nýjung sem vert er að fylgjast með því þannig komast ofarlega á blað smærri hótel sem oft bjóða betur. Það er engin tilviljun að hótel sem birtast á fyrstu síðum flestra hótelleitarvéla eru í dýrari kantinum. Þau greiða nefninlega sérstaklega fyrir að birtast ofarlega og það skekkir því myndina nema fólk hafi nennu til að fletta tugum síða í stærstu borgunum.

Allavega er verðsamanburður lágmarkið ef þér er ekki alveg sama um peningana þína. Og hótelvél Fararheill býður aldrei verr en best.