Tíðindi

Veðurhamur hamlar flugi í Kaupmannahöfn

  29/11/2010febrúar 4th, 2014No Comments

Mikið hvassviðri hefur þýtt að aflýsa hefur þurft hartnær 200 flugum frá Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í dag og er sama veðri spáð frameftir kvöldi.

Lokaðist völlurinn alfarið um tíma fyrir hádegi en nú seinnipartinn hefur tekist að opna tvær brautir en engu að síður eru verulegar tafir á flugum til og  frá vellinum og má búast við því áfram í dag.

Hafa bæði íslensku flugfélögin orðið fyrir töfum vegna þessa.