Tíðindi

Innistæðulaust hjá Iceland Express

  26/11/2010september 29th, 2014No Comments

Í síðustu viku tilkynnti Iceland Express um þrjá nýja áfangastaði næsta sumar og er það vel enda aukið úrval fyrir Frónbúa þó fyrst og fremst sé verið að hugsa um markaði í Skotlandi og á Írlandi.

Er enda um að ræða Dublin, Belfast og Edinborg og var fullyrt í fréttatilkynningu flugfélagsins að þarna byðist í fyrsta skipti beint flug til Íslands frá þessum borgum.

Samkvæmt leiðatöflu flugfélagsins næsta sumar er það ekki alls kostar rétt. Sé flogið frá Belfast er millilent í Edinborg og sé flogið frá Reykjavík til Belfast er millilent í Edinborg. Það verður seint talið beint flug.

Undarlegt nokk er sama verð á flugmiðanum hvort sem millilent er eður ei. Virðist það færast í vöxt bæði hjá þessu flugfélagi og ekki síður þeim ferðaskrifstofum sem notast við Iceland Express að greitt sé fullt verð þótt millilent sé á hinum ýmsu stöðum. Var það þó lengi vel sú ástæða sem íslenskar ferðaskrifstofur gáfu fyrir hærri verðum að um bein flug væri að ræða.