Hásumar er í Brasilíu nú um stundir og því alls ekki fáránlegt að þvælast þangað í skemmtiferð. Það setur hins vegar strik í reikninginn sé áfangastaðurinn Rio de Janeiro að þar er ekki mjög lífvænlegt þessa dagana.
Fimmta daginn í röð eru hermenn að berjast á götum úti við glæpagengi og engum er hlíft. Hafa þegar þetta er skrifað 23 látist í bardögum og þar af minnst fjórir almennir borgarar sem fengu í sig kúlu fyrir tilviljun.
Það er því ráð að stoppa annars staðar meðan þetta gengur yfir ellegar láta fara hægt um sig enda hafa átökin breiðst um meginhluta borgarinnar.
Er þetta því miður ekki í fyrsta sinn sem glæpamenn gera sig breiða í borginni. Fyrr á árinu lagði glæpagengi undir sig lúxushótel í miðborg Ríó og tóku erlenda ferðamenn í gíslingu í skamman tíma. Fór það vel að lokum en sýnir hversu stutt er í ofbeldi og glæpi í borginni.






