London og Kaupmannahöfn eru alfarið út í verslunarlegu tilliti þessi jólin ef hugmyndin er að spara skildinginn. Ritstjórn Fararheill.is getur vottað að almennt í hvorugri borg er verðlag neitt betra en hér á Íslandi.
Báðar borgirnar eru auðvitað höfuðborgir er þær eru ávallt dýrari en aðrir staðir en fyrir vikið er líka úrvalið meira auk þess sem fæstir fara eingöngu erlendis til verslunar. Oftast nær er fólk líka að lyfta sér upp og kíkja á tónleika, leiksýningar eða annað sem færir andann á hærra plan en gerist í verslunum.
Hins vegar eru þrjár borgir í Evrópu sem henta íslenskum krónum afar vel og Fararheill.is getur fyllilega mælt með til verslunar. Það eru Tallinn í Eistlandi, Lissabon í Portúgal og Dublin á Írlandi.
Í Tallinn er verðlag almennt töluvert lægra en á klakanum í Atlantshafinu. Munar þar allt að 20 – 40 prósentum sem er fyllilega þess virði að gera sér ferð eftir. Í Lissabon er sama saga uppi á teningnum. Hægt er að gera þar ágæt kaup fyrir mun lægri upphæðir en hér heima.
Dublin er sér á parti sökum þess að nú er gríðarmikil kreppa skollin á með beiðni þeirra um aðstoð af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins. Fjöldi verslana í borginni eru þegar búnar að lækka verð sín og á stöku stöðum eru hafnar útsölur með allt að 40 prósenta afsláttum í boði.
Aðrir möguleikar eru að hendast vestur um haf til Boston. Þar er verðlag almennt lægra en hér gerist en í Boston þarf að fara út fyrir borgina til að komast í verulega ódýrar verslunarmiðstöðvar.
Því miður eru íslenskar ferðaskrifstofur ekki á tánum nú frekar en áður og enginn býður beinar ferðir til neinna af ofantöldum þremur borgum.
Sé hugmyndin hins vegar að versla mikið og spara mikið getur það verið þess virði að taka tengiflug frá London eða Kaupmannahöfn til þessara áfangastaða. Það er billegt með Ryanair, BMI baby eða easyJet en það er vissulega langsótt að þvælast borga og flugvalla á milli til að spara nokkrar krónur.






