Hér er sannarlega ein hátíð sem sannir íslenskir karlmenn geta vart látið fram hjá sér fara í Zurich í Sviss.
Dagana 2. – 5. desember eru fjögur skip í Bürkliplatz höfn í Zurich eru fyllt af vískíi frá öllum mögulegum löndum og þarna geta menn, og konur að sjálfsögðu, bragðað á guðaveigunum í bland við reyktan lax og smárétti og notið samverustunda.
Er þessi siður þeirra Svisslendinga ekki nýr af nálinni en þykir orðið ómissandi þáttur fyrir hátíðarnar síðar í desember. Aðgangseyrir er 2.100 krónur og hvert glas af guðaveigum 230 krónur. Þeir sem mæta í skotapilsi fá alla drykki ókeypis.
Heimasíða hátíðarinnar hér.



